Two Wheels Travel

myndir frá fyrri ferðum

ferðalýsing

Í þessari 14 daga reiðhjólaferð sláum við tvær flugur í einu höggi með því að heimsækja tvær perlur með mikla menningararfleifð í Suð-Austur Asíu, Kambódíu og Víetnam. Eftir að hafa hjólað nokkra daga um Siem Reap og skoðað hina fornu borg Angkor Wat er stefnan sett á Víetnam. Hjólað er um ævintýralegt landslag í gegnum þorp og sveitir, meðfram Mekong fljóti frá Phnom Penh höfuðborg Kambódíu suðaustur til höfuðborg Víetnam, hina margrómuðu Ho Chi Minh borg eða Saigon. Þetta er ferð sem enginn mun gleyma. Einblínt er á upplifun og návígi við heimafólk á þægilegum hraða sem hentar öllum.

* Hægt að fá rafmagnshjól gegn aukagjaldi

Verð á mann í tvíbýli 629.000 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 47.000 kr.

Dagur 1: Ferðadagur
Dagur 2: Lent í Siem Reap og ekið á hótel. Dagur nýttur í skoðunarferð um borgina og endar með með sameiginlegum kvöldverð á hóteli/veitingastað.
Dagur 3: Hjólin stillt og gerð tilbúinn. Léttur hjóladagur um rústir Angkor og Ta Prohm. Lengd: 30 km.
Dagur 4: Dagsferð að Tonle Sap vatninu í gegnum þorp og landbúnaðarsvæði. Sigling um vatnið og fljótandi þorp þess. Lengd: 30-40 km.
Dagur 5: Dagsferð í gegnum sveitir Kambódíu og yfirgefin hof. Heimsækjum grunnskóla sem TWT styrkir. Lengd: 50 km.
Dagur 6: Ekið / Sigling til Phnom Penh, “Pearl of Asia”,  höfuðborg Kambódíu. Frjálst kvöld við árbakka Mekong.
Dagur 7: Dagsferð um Phnom Penh að Choeung Ek ( The Killing Fields). 
Dagur 8: Við hjólum í átt að landamærum Víetnam meðfram Mekong ánni, gegnum sveitir Kambódíu og ræktunarsvæði.  Lengd 80 km.
Dagur 9: Eftir dásamlegan tíma  Kambódíu, förum við yfir landamærin til Víetnam. Hjólað til Chau Doc  Lengd: 70 km.
Dagur 10: Hjólað frá Chau Doc til Can Tho. Sigling á Mekong fljóti áður en við hjólum meðfram ánni í gegnum þorp og sveitir. Lengd: 50 km.
Dagur 11: Hjólað um hjarta Mekong, Vinh Long og nágrenni. Gistum í Tra Vinh Lengd: 75-80 km.
Dagur 12: Hjólum litla slóða milli þorpa og sveita meðfram sykur- og banana ökrum. Ekið til Saigon eftir hádegismat. Frjálst kvöld í miðborg Saigon. Lengd: 50 km.
Dagur 13: Frjáls dagur í Saigon. Sameiginlegur kvöldverður
Dagur 14: heimferð um kvöldið.

*Birt með fyrirvara um breytingar

Viltu ítarlegri upplýsingar um ferðina? Sendu okkur tölvupóst

Allt innifalið

* Kostnaður við vegabréfsáritun og önnur persónuleg útgjöld eru ekki innifalin

myndband frá fyrri ferð

umsagnir

"Fór með Eiríki í hjólaferð um Kambódíu & Víetnam 2017. Þessi ferð var mesta ævintýri sem ég hef farið í. Það var ný upplifun á hverjum degi."
mynd af ulfari
Úlfar Guðmundsson

kort af leið ferðar

reiðhjólin

Reiðhjólin sem höfum til afnota í reiðhjólaferðinni eru ávallt nýleg fjallahjól sem henta vel í hverskyns aðstæður. Við munum hjóla um bæi og sveitir meðfram árósum Mekong þar sem undirlag skiptist á milli malbiks og malarvegs. Hjólin þurfa því að vera fær í flestan sjó hvort sem það er malbik, leirvegur eða það sem við myndum kalla kindastíg. Skynsamlegt er að taka með gelhlíf til að setja yfir hnakkinn þar sem slíkur búnaður eykur þægindi verulega. Skóbúnaður er valfrjáls, en hjólin koma ekki með búnaði fyrir hjólaskó. Einnig er valfrjálst að taka með sér sinn eigin hjálm, en þó er möguleiki á að fá góðan hjálm til afnota á meðan ferð stendur.

Almennar upplýsingar

Íslendingar geta sótt um E-visa á netinu sem er einfalt og skilvirkt ferli. Það tekur um 1-3 virka daga að fá vegabréfsáritun. Hafið það í huga að nauðsynlegt er að vegabréfið ykkar sé gilt lengur en 6 mánuði frá brottfaradegi.

Hér má sjá allar nauðsynlegar upplýsingar hvernig skal aðhafast.

Allur matur er innifalinn samkvæmt dagskrá. Matur í Kambódíu og Víetnam er virkilega ljúffengur og hér gefst frábært tækifæri til að prufa nýjan og framandi mat. Nauðsynlegt er að vökva sig vel í reiðhjólaferðinni og því mun stuðningsbíllinn okkar ávallt vera með vatn, ávexti og orkudrykki innan handar.

Veðurfar í Suður – Víetnam og Kambódíu er þurrt og heitt frá Nóvember til Apríl, og blautt og heitt frá Maí til Október. Hafið þó í huga að þegar rigningatímabil stendur yfir er oftar en ekki heiðskýrt framan af degi, með tilheyrandi rigningardembu síðdegis sem stendur yfir í 1-2 klst. Mælt er með fyrir að taka með sólarvörn með 30-50 í SPF styrk.

Að auki íslensks farastjóra er ávallt innlendur leiðsögumaður með í för sem þekkir hvern krók og kima. Fylgdarbifreið er einnig  aldrei langt á undan þar sem ávallt er í boði að hvíla sig, geyma farangur eða sækja sér hressingu.

Senda fyrirspurn um ferð

Aðrar ferðir Two Wheels Travel

Mótorhjólaferð Víetnam

Mótorhjólaferð Indland

Sérsniðnar ferðir