myndir
ferðalýsing
Í þessari mögnuðu 14 daga reiðhjólaferð kynnumst við Japan frá allt öðru sjónarhorni en hinn dæmigerði ferðamaður. Við hjólum í gegnum fallegar sveitir og lítil þorp, heimsækjum forn hof og helga staði og gefum okkur góðan tíma til að njóta þeirrar einstöku menningar sem einkennir landið. Á leiðinni bíður okkar heimsfræg japönsk matargerð og te-athafnir, einstaklega notalegar gistingar með heitum laugum og fjölbreytt landslag þar sem gamlar hefðir og nútími mætast. Við gefum okkur svo góðan tíma í höfuðborg Japans, Tokyo, í lok ferðar.
* Rafmagnshjól í boði gegn aukagjaldi
Verð á mann í tvíbýli 1.249.000 kr.
Aukagjald fyrir einbýli 139.000 kr.
Dagskrá ferðarinnar
Dagur 1: Ferðadagur í gegnum Helsinki.
Dagur 2: Lent í Tokyo og ekið á hótel. Almenn hvíld og endum með með sameiginlegum kvöldverð á hóteli/veitingastað.
Dagur 3: Hraðlest til Tochigi. Hittum teymið okkar og stillum hjólin. Hjólum um Umeda dalinn og endum í Kiryu Lengd: 30 km.
Dagur 4: Hjólum um Seifuen í gegnum gamla skóga umkringd hofum áður en við endum í heitum laugum Kiryu. Lengd: 50 km.
Dagur 5: Kveðjum Kiryu og hjólum í átt að Sano Dal. Lengd: 45-50 km.
Dagur 6: Hvíldardagur. Deginum eytt í hinum ævaforna bæ, Ashikaga.
Dagur 7: Kveðjum Sano dal og hjólum í átt að Akagai eldfjalli. Endum í heitum laugum Yamaya Ryokan. Lengd: 60 km.
Dagur 8: Æðislegur dagur í Gunma héraði sem endar í Onsen bænum, Ikaho. Lengd 35 km.
Dagur 9: Dagstúr um Haruna-vatn og Rindo. Endum aftur í Ikaho. Lengd: 45-50 km.
Dagur 10: Eftir æðislega daga í Ikaho, hjólum við í átt að Kawaba dal og endum í æðislegri gistingu í Yutorian. Lengd: 60 km.
Dagur 11: Síðasti hjóladagurinn. Þægileg leið í gegnum sveitir Gunma. Kveðjum teymið og tökum háhraðarlest til Tokyo. Lengd: 30 km.
Dagur 12: Eftir morgunmat förum við í leiðsögn um Tokyo. Frjálst eftir hádegi.
Dagur 13: Frjáls dagur í Tokyo
Dagur 14: Heimferðardagur í gegnum Helsinki.
*Birt með fyrirvara um breytingar
Viltu ítarlegri upplýsingar um ferðina? Sendu okkur tölvupóst
Allt innifalið
- Flug til og frá Íslandi
- Gisting
- Fullt fæði á tilteknum ferðadögum
- Íslenskur farastjóri
- Reiðhjól ( Rafmagnshjól gegn aukagjaldi )
- Fylgdarbifreið og vélvirki
- Innlendur leiðsögumaður
- Allur aðgangseyrir í hof, söfn & lestir
- Akstur til og frá flugvelli
* Kostnaður við vegabréfsáritun og önnur persónuleg útgjöld eru ekki innifalin
umsagnir
kort af leið ferðarinnar
reiðhjólin
Reiðhjólin sem við höfum til afnota í reiðhjólaferðinni eru ávallt nýleg sem henta vel við í aðstæður. Við munum hjóla um bæi og sveitir Japans. Öll leiðin er malbikuð. Skynsamlegt er að taka með gelhlíf til að setja yfir hnakkinn þar sem slíkur búnaður eykur þægindi verulega. Skóbúnaður er valfrjáls, en hjólin koma ekki með búnaði fyrir hjólaskó. Einnig er valfrjálst að taka með sér sinn eigin hjálm, en þó er möguleiki á að fá góðan hjálm til afnota á meðan ferð stendur. Hægt er að leigja rafmagnshjól gegn aukagjaldi.
Almennar upplýsingar
Ekki þarf að sækja um vegabréfsáritun til Japans fyrirfram. Hafið það í huga að nauðsynlegt er að vegabréfið ykkar sé gilt lengur en 6 mánuði frá brottfaradegi.
Allur matur er innifalinn samkvæmt dagskrá. Matur í Japan er heimsþekktur og er virkilega ljúffengur. Einnig gefst frábært tækifæri til að prufa nýjan og framandi mat. Nauðsynlegt er að vökva sig vel í reiðhjólaferðinni og því mun stuðningsbíllinn okkar ávallt vera með vatn, ávexti og orkudrykki innan handar.
Maí er yndislegur tími til að ferðast um Japan, þegar vorið er í fullum blóma og hitastigið yfirleitt þægilegt til hjólreiða. Dagarnir eru gjarnan hlýir og bjartir, en kvöldin geta verið svalari og úrkoma er alltaf möguleg. Við hjólum um fjölbreytt landslag þar sem veður og hitastig geta verið mismunandi eftir hæð og staðsetningu.
Íslenskur farastjóri og innlendur leiðsögumaður sem þekkir hvern krók og kima. Fylgdarbifreiðin okkar er einnig aldrei langt á undan þar sem ávallt er í boði að hvíla sig, geyma farangur eða sækja sér hressingu.
Reiðhjólaferðin um Japan hentar öllum, jafn byrjendum sem lengra komna. Ferðin er öll á malbikuðum stígum. Hægt er að leiga rafmagnshjól gegn gjaldi.











