Two Wheels Travel

myndir frá fyrri ferð

ferðalýsing

Two Wheels Travel kynnir alvöru 14 daga Enduro ferð um sveitir og þorp Kambódíu.  Við einblínum á frábærar leiðir, slóðir um einstök hof djúpt í frumskógum Kambódíu. Þessi ferð er algjörlega sérhönnuð frá A-Ö af Eiríki hjá Two Wheels Travel og teyminu okkar í Kambódíu. Það má búast við grjóti, klöppum, þéttum leirvegum og fullt af sandi. Um 90% af leiðinni okkar um Kambódíu er utanvegar. Eftir nokkra daga í  Siem Reap höldum við í átt að höfuðborginni, Phnom Penh á gríðarlega skemmtilegum slóðum og leiðum. Þetta er krefjandi ferð og reynsla af utanvegar akstri er skilyrði.  Áhersla er á upplifun og ævintýri í þessari einstöku enduroferð þar sem mótorhjólin okkar eru kjörin ferðamáti á þessum slóðum sem gerir okkur kleift á að kynnast heimafólki á einstakan hátt á sama tíma og við fáum innsýn í sögu, menningu og næturlíf Kambódíu í Siem Reap og Phnom Penh. 

Verð á mann í tvíbýli 649.000 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 47.000 kr.

Dagur 1: Ferðadagur. Flogið frá Íslandi til Siem Reap, Kambódíu
Dagur 2: Lent i Siem Reap og ekið á hótel. Kvöldið nýtt í skoðunarferð um borgina og endar með með sameiginlegum kvöldverð.
Dagur 3: Enduro dagsferð að Kulen þjóðgarði.
Dagur 4: Rólegur dagur í Siem Reap. Angkor Wat hofin skoðuð í dagstúr frá Siem Reap.
Dagur 5: Við kveðjum Siem Reap og höldum í átt að Khos Khe á skemmtilegum slóðum.
Dagur 6: Frá Khos Khe hjólum við Preash Vieha
Dagur 7: Preash Vieha til Steng Treng
Dagur 8: Afslöppun í Steng Treng. Enduro dagstúr eftir hádegi.
Dagur 9: Kveðjum Steng Treng og höldum í átt að Kratie
Dagur 10: Kratie til Kompong Cham
Dagur 11: Síðasti hjóladagurinn, höldum í áttina að Phnom Penh.
Dagur 12: Frjáls dagur í Phnom Penh. Mælt er með að skoða Killing Fields.
Dagur 13: Heimferð. Kveðjum Phnom Penh og fljúgum heim til Íslands.
Dagur 14. Lent heima á Íslandi.

*Birt með fyrirvara um breytingar

Aukagjald fyrir einbýli 47.000 kr.

Viltu ítarlegri upplýsingar um ferðina? Sendu okkur tölvupóst

ALLT INNIFALIÐ

* Kostnaður við vegabréfsáritun og önnur persónuleg útgjöld eru ekki innifalin
* Fæði samkvæmt dagskrá

myndband frá fyrri ferð

umsagnir

"Ég get vel mælt með Eiríki í TWT. Ég fór með góðum hópi til Víetnam í okt/nóv 2023 þar sem ég átti ævintýralega upplifun af landi og þjóð. Ferðin var mjög vel skipulögð í alla staði og Eiríkur öllu kunnugur. Ég hvet alla sem hafa áhuga á að láta drauma sína rætast. Ég ætla að halda áfram að elta mína drauma og stefni á aðra ferð með Eiríki. Takk fyrir mig."
Erlendur G Guðmundsson
"Eiríkur Viljar er frábær náungi og finnur afskaplega trausta samstarfsaðila erlendis. Fór með honum í 10 daga ferð um Víetnam. Ég hafði komið áður, en ferð á mótorhjólum opnaði alveg nýja sýn á landi og þjóð"
Mynd af Halldóri
Halldór Björnsson

kort af leið ferðar

*Smellið á myndina til að skoða kort nánar

mótorhjólin

Mótorhjólin sem við notum í enduro ferðinni í Kambódíu eru virkilega góð Yamaha WR250 dual sport hjól. Mótorhjólin eru öll nýleg og yfirfarinn fyrir hverja ferð.  Þetta eru 250cc dual sport hjól og skila rúmlega 30 hestöflum. Einstaklega lipur og skemmtileg mótorhjól sem eru kjörin fyrir ferðalag okkar um slóða Kambódíu. Við munum hjóla um borgir, bæi og sveitir og mótorhjólin okkar þurfa því að vera öflug á hvaða undirlagi sem er.

almennar upplýsingar

Íslendingar fá vegabréfsáritun við komuna í Kambódíu. Ekki þarf að sækja um vegabréfsáritun áður. 

Allur matur er innifalinn samkvæmt dagskrá. Matur í Kambódíu er virkilega ljúffengur og hér gefst frábært tækifæri til að prufa nýjan og framandi mat. Nauðsynlegt er að vökva sig vel í mótorhjólaferðinni og því munum við taka reglulega drykkjar- og kaffipásur. 

Veðurfar í Kambódíu er þurrt og heitt frá Nóvember til Apríl, og blautt og heitt frá Maí til Október. Hafið þó í huga að þegar rigningatímabil stendur yfir er oftar en ekki heiðskýrt framan af degi, með tilheyrandi rigningardembu síðdegis sem stendur yfir í 1-2 klst. Mælt er með fyrir að taka með sólarvörn með 30-50 í SPF styrk.

Að auki íslensks fararstjóra er ávallt innlendur leiðsögumaður með í för sem þekkir hvern krók og kima. Í mótorhjólaferðinni er einnig viðgerðarmaður með í för sem sér um að hjólin séu klár hvern morgun áður en við leggjum af stað og fylgdarbifreið sem sér um farangurinn okkar.

Senda fyrirspurn um ferð

Aðrar ferðir Two wheels travel

Reiðhjólaferð Kambódía & Víetnam

Mótorhjólaferð Indland

Sérsniðnar ferðir